Share

Eldföst skál, Uunikokki frá Arabia. Tekur um 1,5 lítra, er um 25 cm í þvermál og um 8 cm á hæð. Skálina má setja í frysti, bakarofn og örbylgjuofn þannig að hún hentar jafnt fyrir ofnrétti, pasta og allskonar heit og köld salöt. Eins og ný. Verð: 2800 krónur.


Eldföst skál - Arabia Full View


Ljóðabók eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, gefin út af Menningarsjóði 1974. Mjög gott ástand. Verð 1500 kr.
Að brunnum Full View


Snjólaug blessunin bregst ekki. Hér gefst tækifæri til að eignast eitt af þekktustu verkum hennar, Allir eru ógiftir í verinu, útg. af Erni og Örlygi árið 1974. Mjög fínt skikk.

Verð 1500 kr. eða besta boð.
Allir eru ógiftir í verinu Full View


"Ég hef skrifað bernskuminningar í þetta kver án nokkurra vilyrða um sannindi, beinlínis í þeirri mynd sem þær hafa þyrlast upp úr rykugu hugskoti mínu ..."  Segir Stefán Jónsson í þessari þekktu bók.

Eintak í toppstandi, verð kr. 2500 eða besta boð.
Að breyta fjalli, Stefán Jónsson Full View




Tveir gamlir og grúví hanabakkar úr málmi, fallega rauðir á bakhlið. Mjög hentug stærð (41x20 sm). Ath. þeir líta betur út en á mynd, það koma einhverjir skrýtnir skuggar á ljósmyndunum.
Verð 1000 kr. stykkið, 1600 ef báðir keyptir saman.
Galandi fegurð Full View




Kits? Já, já, en svalur lampi engu að síður, útskorinn í tré. Skermurinn er sérlega fallegur, sér aðeins á honum en það gefur bara gamlan og hlýlegan sjarma. Hæð lampa með skermi er 49 sm. Verð (lampi + skermur)  3900 krónur eða besta boð.
Lampi fyrir geitelska Full View

Snotur lítill spegill á vegg, vel með farinn. Framleiddur í Indlandi fyrir Bretlandsmarkað.  Spegillinn er vandaður, á honum er málmbak og hanki til að hengja upp. Þvermál um 16 sm. Verð 1000 kr.
Spegill Full View


Mjög fallegar "miðrar-síðustu-aldar" skálar, framleiddar í Bretlandi. Frábært skikk, nokkuð stórar (um 23 sm þvermál). Passa vel undir popp eða jafnvel víða blómapotta.

Hvíta skálin seld, þessi brúna fæst á 600.
Poppskálar Full View








Nú gefst áhugafólki um kvenlega fegurð einstakt tækifæri til að eignast samnefnda bók. Bókin kom út árið 1956 hjá Bókaútgáfunni Setbergi. Frú Ásta Johnsen ritstýrði og lagaði texta að íslenzkum aðstæðum, en höfundur er Olga Tschechowa.

Bókin er ríkulega myndskreytt (ljósmyndir og teikningar) og afar vel úr garði gerð, m.a. má sjá allnokkrar ljósmyndir af íslenzkum fegurðardísum.

Margar myndanna eru furðu lausar við tepruskap, t.d. ein af kviknakinni konu í flæðarmáli og bókina prýða einnig spræklegar teikningar af berbrjósta konum í leikfimi.

Mjög vel með farið eintak. Verð: Hæsta boð (lágmarksboð 2500 krónur).
Kvenleg fegurð Full View

HOME | ABOUT

Copyright © 2011 Dísa & Beta | Powered by BLOGGER | Template by 54BLOGGER